Speakerphone HF 510 - Umhirða og viðhald

background image

Umhirða og viðhald

Í tækinu fer saman frábær hönnun og flókin tækni sem fara þarf gætilega með.
Eftirfarandi leiðbeiningar hjálpa til við að halda tækinu í ábyrgð.

Halda skal tækinu þurru. Úrkoma, raki og hvers kyns vökvar geta innihaldið
steinefni sem tæra rafrásirnar. Ef tækið blotnar skal leyfa því að þorna alveg.

Ekki skal nota tækið á rykugum og óhreinum stöðum né geyma það þar.
Hreyfanlegir hlutir og rafrænir hlutar þess geta skemmst.

Ekki skal geyma tækið á heitum stað. Hátt hitastig getur dregið úr endingu
rafeindatækja, skemmt rafhlöður og undið eða brætt sum plastefni.

Ekki skal geyma tækið á köldum stað. Þegar tækið hitnar upp að eðlilegu
hitastigi getur raki myndast innan í því og hann getur skemmt rafrásaspjöld.

Ekki skal reyna að opna tækið.

Tækinu skal ekki henda, ekki skal banka í það eða hrista það. Óvarleg meðferð
getur skemmt innri rafrásaspjöld og fíngerðan búnað.

Ekki skal nota sterk efni, leysiefni til hreingerninga eða sterk hreinsiefni til
þess að þrífa tækið.

Ekki skal mála tækið. Málningin getur fest hreyfanlega hlutina, hljóðnemann
eða hátalarann og komið í veg fyrir að þeir vinni rétt.

Þessar ábendingar eiga jafnt við um tækið, hleðslutækið og annan aukabúnað.
Ef tæki vinnur ekki rétt skal fara með það til næsta viðurkennda þjónustuaðila til
lagfæringar.

Endurvinnsla

Merkið sem sýnir yfirstrikaða ruslafötu og er á vörunni, rafhlöðunni,
bæklingnum eða umbúðunum táknar að fara verður með allan rafbúnað
og rafeindabúnað, rafhlöður og rafgeyma á sérstaka staði til förgunar
að líftíma vörunnar liðnum. Þessi krafa á við innan Evrópusambandsins.
Hendið þessum vörum ekki með heimilisúrgangi. Frekari upplýsingar
varðandi umhverfismál er að finna í Eco-yfirlýsingu fyrir vöruna
á www.nokia.com/environment.

Skilaðu alltaf notuðum rafbúnaði, rafhlöðum og umbúðum á sérstaka
söfnunarstaði. Með því stuðlar þú að takmarkaðri losun á úrgangi og
endurvinnslu. Nánari upplýsingar um safnstaði eru veittar hjá söluaðilum,
viðkomandi yfirvöldum á staðnum, framleiðslueftirliti í viðkomandi landi
eða umboðsaðila Nokia á staðnum. Fáðu upplýsingar um hvernig hægt er
að endurvinna vörur þínar á at www.nokia.com/werecycle, eða ef þú ert
að vafra í farsímatæki, á www.nokia.mobi/werecycle.

background image

V i ð b ó t a r ö r y g g i s u p p l ý s i n g a r

20