Speakerphone HF 510 - 5. Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki

background image

5. Upplýsingar um rafhlöðu

og hleðslutæki

Þetta tæki er með innbyggða, fasta, endurhlaðanlega rafhlöðu. Ekki reyna að
fjarlægja rafhlöðuna úr tækinu þar sem það getur skemmt tækið. Tækið er ætlað
til notkunar þegar það er hlaðið með eftirfarandi hleðslutækjum: AC-3, AC-4,
AC-5 og DC-4. Númer hleðslutækisins getur verið mismunandi eftir klónni sem
er notuð. Gerð klónnar er auðkennt af einu af eftirfarandi: E, EB, X, AR, U, A,
C eða UB. Hægt er að hlaða og afhlaða rafhlöðu nokkur hundruð sinnum en
að því kemur að hún gengur úr sér. Aðeins skal endurhlaða rafhlöðuna með
hleðslutækjum sem Nokia hefur samþykkt til notkunar með þessu tæki. Notkun
ósamþykktra hleðslutækja getur valdið eldhættu, sprengingu, leka eða haft aðra
áhættu í för með sér.

Ef verið er að nota rafhlöðu í fyrsta skipti, eða ef rafhlaðan hefur ekki verið notuð
í langan tíma, kann að vera nauðsynlegt að tengja hleðslutækið, aftengja það
síðan og tengja það aftur til að hefja hleðsluna. Ef rafhlaðan er alveg tóm geta
liðið nokkrar mínútur þar til hleðsluvísirinn birtist á skjánum.

Taka skal hleðslutækið úr sambandi við rafmagnsinnstungu og tækið þegar það
er ekki í notkun. Ekki má hafa fullhlaðna rafhlöðnu í sambandi við hleðslutæki þar
sem ofhleðsla getur stytt líftíma hennar. Fullhlaðin rafhlaða tapar hleðslunni
smátt og smátt ef hún er ekki í notkun.

Æskilegast er að rafhlaðan sé alltaf höfð í hita á bilinu frá 15°C að 25°C (frá 59°F
að 77°F). Of mikill hiti eða kuldi draga úr endingu og líftíma rafhlöðu. Tæki með
heitri eða kaldri rafhlöðu kann að hætta að starfa tímabundið. Einkum hefur
mikið frost takmarkandi áhrif á rafhlöður.

Ekki má fleygja rafhlöðum í eld þar sem þær geta sprungið. Rafhlöður geta einnig
sprungið ef þær skemmast.

Aldrei skal nota skemmt hleðslutæki.

Mikilvægt: Tal- og biðtími rafhlöðu eru áætlaðir og velta
á farsímakerfi, notkun, aldri og ástandi rafhlöðu, hitastigi og mörgum
öðrum þáttum. Lengd símtala hefur áhrif á biðtíma tækisins. Sömuleiðis
hefur það hversu lengi er kveikt á tækinu og biðtími þess áhrif á taltíma.

background image

U m h i r ð a o g v i ð h a l d

19