■ Búnaður festur við mælaborð
Hægt er að festa hljóðbúnaðinn við mælaborð með meðfylgjandi
festingu og límpúða.
1. Gættu þess að staðurinn á mælaborðinu sem þú festir límpúðann
á sé sléttur, þurr, hreinn og ryklaus.
2. Settu gripið á festingunni inn í raufina
aftan á hljóðbúnaðinum (1). Snúðu
hljóðbúnaðinum réttsælis þar til
hann festist á sínum stað (2).
3. Taktu hlífina af límhlið
púðans (3), og þrýstu
púðanum á mælaborðið (4)
þannig að hann sitji fastur
á sínum stað.
Þegar þú fjarlægir hlífina
skaltu gæta þess að snerta
ekki límhliðina.
4. Taktu hlífina af hinni hlið púðans og þrýstu
sogskál festingarinnar á púðann (5).
5. Snúðu hljóðbúnaðinum eins og þú vilt
hafa hann (6).
6. Snúðu festingunni réttsælis til að lofttæmi
myndist (7). Gættu þess að sogskálin sé
vandlega fest.
Til að losa hljóðbúnaðinn úr festingunni snýrðu honum rangsælis.
Til að losa festinguna frá mælaborðinu skaltu snúa henni rangsælis
og toga í bandið sem er sogskálarbrúninni.
G r u n n n o t k u n
14